fimmtudagur, nóvember 21, 2002  

Alveg fu**t - er búin að laga kommentin - en þá vill útlitið á öllu draslinu bara ekki hlýða ..... ó vell.
De La Soul voru æði(Halli tók blurrí myndir).... nema kannski senan þarsem tíu 13 ára gellur voru fengnar uppá svið til að hrissta sig... frekar sveitt sko. Það stendur víst í einhverri handbók fyrir ameríska hiphop tónleikahaldara að þetta sé málið.... Var líka dugleg að hoppa á veiku löppinni minni í gær - fékk loksins eitthvað frá þessum Jörgen lækni mínum - svona bindi-eitthvað. Er orðin bjartsýnari á fljótlegan bata fyrir jólabrettaferðalagið. En ég mun samt sakna göngulagsins.... þessu "var að koma úr klíku shoot-outi í Bronx"-attitjúti!
annars gerðist lítið merkilegt í dag... jú hún Lotta vinkona mín í svíþjóð klippti af sér dreddana sem hún er búin að vera með (og aldrei svo mikið sem bleyta) í 5 ár! Heilbrigt múf. Það má ´sjá mynd af konunni í myndasögunni minni um He-Man í chamonix!! endilega skoðið!!
takk&bletz....

já og ég vil spyrja aftur hvort ég hljóma eins og dana-rasisti? komment takk!

posted by sArs | 23:10