sunnudagur, apríl 27, 2003  

OfurhetjuSkólaball í gær. Sars lét sjá sig... fyrir kurteisissakir. Og mín meira að segja var í búníng! Dulbúin sem OfurGenGilbeinan - vopnuð svuntu, kaffi á þermosbrúsa, brennivínspela.....og að sjálfsögðu snjóflóðaSkóflu!!! Rosa löng saga á bak við karakterinn: já hún vinnur sko á svona AlpaRestóranti....hlýjar þreyttum snjóbretta-/skíðapiltum með kaffi (átti ekki kakó) og íslömskubrennivíni - síðan ef einhver festir sig í snjóflóði þá er ég viðbúin með skóflu á bakinu.. The WonderWaitress!
hér eru allavega myndir.
tÓnlistin var til skammar, en bjargaði fólki með kaffi og brennz - svona til að missa heyrnina í nokkrar sekúndur. Já það á alltaf að passa að það sé allavega eitt stk. bjargvættur á svæðinu - enda var mér BORGAÐ fyrir að koma! já ég er 235 dönskum krónum ríkari eftir kvöldið.
Næstu helgi er raftónlistarhátíð! Recession er Árósísk uppákoma þarsem einhver sniðugur er búinn að bóka m.a. COLDCUT, AsianDubFoundation, Xploding Plastix og fleirri sniðuga tónlistarmenn! gLEði glEði! Já og ekki má gleyma eina íslenska nafninu á listnum - dj Hjörtur!! (??whoDaF***??)
sAraÚt.

posted by sArs | 15:34