fimmtudagur, febrúar 12, 2004  

Þá er kOmið að því - stundin sEm ég hef beðið eftir síðan í byrjun nÓvember (eða öllu heldur síðan ég var 10 ára gömul og rændi krAftwerk kassettu af föður mínum) - ég er fArin á krAftwerk tÓnleikana. Þeir eru reyndar á laugardaginn (og já - ég veit þeir spila líka á íslandi einhverntímann á næstunni.. í höllinni eða eitthvað álíka fínt) en frá og með flÖskudeginum mun ég vEra stödd í kóngsins kÖben og dvelja þar frammá mánudag.
í köben gæti allt gErst - kannski kaupi ég mér Pels.... eða panta mér nauta prime-rib á Jensens.....eða máta fullt af dEnimfötum....?? eins og ég skrifa - allt gæti gErst!

rAkst á skemmtilegt dót í fÖtex um daginn: hér er grein sEm ég setti inná huga um það:

Fór útí búð áðan (samanber Hagkaup, nema bara í danmörku) og þar er nú loksins hægt að kaupa þessi fínu snjóbretti á skítnar 100 krónur danskar! MEÐ bindingum! þEtta gera sirka 1180.- krónur íslamskar! Gripurinn var vakúmpakkaður í plast með eitt stykki límmiða með viðeigandi upplýsingum á þrEmur túngumálum - eitt þeirra íslenka - og ætla ég að setja þessar upplýsingar inní þetta ó svo tilgangslausa rit mitt:

SNOW-BOARD frá viniSport
* snjóbrettið skal ekki nota í mjög bröttum brekkum.
* það þarfnast leikni að nota snjóbretti. mikill hraði veldur því að erfiðara verður að stjórna brettinu og getur þannig aukið áhættuna á að maður detti og meiði sig. notið hjálm.
* farið ekki of nálægt öðru fólki sem er í brekkunum
* notið ekki snjóbretti þar sem umferð er, vötn, lækir eða þar sem hætta er á að lenda á tré, steinum eða örðu þvílíku.
* snjóbretti eru ekki ætluð börnum innan 6 ára.
* viniSport SNOW-BOARD er gert úr endurunnu plasti og þolir 30 gráðu frost.

gAman. ekki fékk ég svona ítarlegar leiðbeiningar með brettinu sem ég keypti á soldið miklu meiri pening en 1180 kall.
og hvað gerist ef þetta bretti fer í aðstæður þarsem kuldinn fer yfir þessar 30 gráðu frost??


trúum öllu sEm við lEsum og fÖrum eftir rEglunum!! sArs

posted by sArs | 23:56