sunnudagur, mars 04, 2007 (hús)BÍLINN MINNNNNNN.......ég elska bílinn minn!
ÞEtta er uppáhaldshliðin mín af húsbílnum sem við stelpurnar leigðum um dagin og bjuggum í í Whislter. Ég gæti alveg huxað mér að búa í svona græju í einhvern tíma. Ég á eitthvað svo bágt með að búa á einum stað of lengi. Verst hvað mér finst leiðinlegt að keyra, en þá er samt skemmtlegara að keyra svona 6 metra búsbíl, því það er hægt að taka uppí 8 spænska puttalinga með skíðadóti. Svo er líka hægt að fara í leikinn "hver getur hellt uppá te og reynt að halda 7 skúffum lokuðum ámeðan ekið er niður fjallaveg í snjókomu".
Það var líka rugl mikill snjór þessa viku sem við vorum á staðnum. Ferskt púður á hverjum degi og nógu lélegt skyggni til að halda fólksmergðinni heima hjá sér - s.s. meira ferskt f. okkur! Hér má sjá fleirri myndir af hvítrusl skíðaferðinni!
Hér kemur annars smá svona væmið afmælis drottningarvínk!
Ef þú ert ekki búin/nn að óska mér tilhamingju nú þegar, gerðu það þá núna. En blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir.
að eilífu krakki sAra posted by sArs | 21:10