fimmtudagur, mars 25, 2004  

Þáttur um bandarískt kvennafangelsi í imbanum: rúmlega 2000 kéllingar samankomnar í spikríku, eiturlyfjadrifnu og lesbíuráðandi umhverfi. mAgnað sjónvarpsefni! Það er ekki EIN fangakelling í kjörþyngd. hvErn andskotan fær þetta að éta í fangelsis matsalnum? gEtur varla verið svo gott að þær geti raðað í sig og safnað utaná sér þessum MUSSo-jeppa varadekkjum! ÞÆr sitja eins og flóðhestar í dýragarði inní svona útiporti og leiðast og skiptast á heroíni eða öðrum eiturlyfjum sem komast inní fangelsið. 80% af þeim eru mæður. sumar eru 3ggja barna mæður og hafa verið í fangelsi í 20 ár og eiga kannski eftir að vera þar til æviloka. Sumar þeirra fengu lífsdóm fyrir að t.d. stela nokkrum fataflíkum, eða bara að vera með í ferð þegar kærastinn var að ræna sjoppu. Undarlegt dómskerfi. ámeðan Amber sem vergur 138 kíló situr í fangaklefa fyrir að hafa reynt að ræna bíl (gat ekki ekið af vettvangi því hún kunni ekki á beinskiptan) - þá sitja menn eins og Don Rumsfeld, George W. Bush og John Ashcroft í grilljóna dala hýbýlum sínum - algerlega siðlausir og skæðir.
Lengi lifi réttarkerfið..

posted by sArs | 22:05


mánudagur, mars 22, 2004  

Ég endurvinn. ef þú endurvinnur ekki ruslið þitt í bAunalangi þá ertu sektaður. gEt ég verið viss um að endurunna draslið sé síðan í alvörunni unnið af öndum? NEI! ég hef aldrei elt endurvinnslubílinn. Las einhversstaðar að það væri miiiklu hagkvæmara að brenna bara allann pappír til orkunýtingu frekar en að framleiða úr þessu skeinipappír. En á meðan fÓlk endurvinnur heldur það að það sé að gera náttúrunni greiða og allir eru ánægðir....
rAuði krossinn safnar inn fötum sEm svo eru "gefin" fátækum. EINMITT. Það sem þeir gera er að þeir sanka að sér öllum þessum gefins flíkum - flytja þau svo útí afríkulönd (eða annað) og UNDIRBJÓÐA (selja aaaðeins ódýrara og græða s.s.) fatamarkaðinn í tilteknu landi svoleiðis að þriðjaheims löndin ná aldrei fótfestu í t.d. nýjum textílframleiðslum sem gefa heimamönnum bæði vinnu og framsækni í sjálfstæðismálum. Ég sem beið alltaf svo spennt eftir því að koma auga á "Ég er Garpur" -bolinn sem ég dóneitaði til rauða (haka)krossins á sínum tíma í einhverri stuttri frétt um þakklátt fólk í Nigeragua....

posted by sArs | 12:12