fimmtudagur, febrúar 27, 2003  

éG á aFmæLi í dag!!
Blómavendir og kransar vinsamlegast afþakkaðir - en endilega leggið inná reikningsnúmer 1195-26-04252 upphæð að eigin ósk. Bévítans kommentakerfið er niðri (var það allavega), en ég vona að fólk sjái sér fært um að senda mér kannski fallegan rAfpóst á sax@bboy.com og skrifa kannski örfá orð um frábærleika minn og fegurð.... (kannski erfitt í fáum orðum samt).

JAH blessi ykkur börn mín góð - sArs

posted by sArs | 01:22


miðvikudagur, febrúar 26, 2003  

Er þá komin heim.... einhver að skjóta mig takk!! Skítakuldi og þoka - ég get þá allavega ímyndað mér að að séu fjöll hérna í kring ámeðan það sést ekkert. Ég gæti líklega skrifað sjöþúsund og nítíuþúsund orð um ferðina mína til uppáhalds staðar míns í heiminum! EN þarsem ég efast um að nokkur sál nenni að lesa um ástríðu mína og þrá og ævintýraskap þá held ég að ég spjari ykkur..... og segji frekar frá jógúrttegundinni sem ég rakst á útí búð í gær.. eða ekki;
nóða gótt:sAra

posted by sArs | 00:38