laugardagur, september 27, 2003  

: oHajo-gEnkí : (hvað er títt á japönsku)
Var ég nokkuð búin að láta þessu dyggu lesendur mína vita af því að ég væri búin að setja allar hrÓaskeldumyndirnar á síðuna? (f. utan myndirnar hans Þrása þorskféss) Fariði inná myndaALbÚm nr. 1 og inní rOskilde 2003 galleríið. ~~ nú eruði kannski öll að velta því fyrir ykkur hversvegna í anskotanum ég setti ekki bara link beint ínní textann hérna í stað þess að neyða skelduþyrsta fÓlkið til að ferðast með músabendilinn þvert yfir skjáinn og tilbaka TVISVAR!?!? SVarið er einfalt. og tvírætt. : Ef ég setti inn link beint í textann væri ég að gera nákvæmlega það sem ÞIÐ VILDUÐ að ég gerði, en hef ég þá í staðinn leikið á alheiminn enn á ný með nýstárleika mínum í alnetsnotkun. HItt svarið er það að ég er með ófinnanlegan vírus inná vélinni minn og ég get eiginlega ekki koppí/peistað eða klikkað á helminginn af tökkunum sem notast á við á hinum ýmsum heimasíðum. EN - örvæntið ekki - því ég fer með vélina til doktor Kézimons snemma í næstu viku og hann ætlar eitthvað að tantrana.

Stüssy-kvöld í kvöld. sAra kennir dananum að laga annað en þessar helvítis kÖkur sem þeir eru síÉtandi - og ætla að nema baunanum sushi-gerð.
: Sayonara :

posted by sArs | 17:35


fimmtudagur, september 25, 2003  

Enn einn lifandi sjónvarpsþátturinn: nú er það þátturinn um sænsku ofurfitusjúklingana! Fur fAAAn jag kan inte mer. det är for mycket.
Fór til kóngsins kÖben síðustu helgi og hitti þar verur á borð við Julie, Össa, Öddu og Stebba og síðan fullt af íslendingum sem vissu víst hver ég var - en ég gat ekki aaaalveg staðsett - meira að segja gaur sem stökk upp og kyssti mig á kynnina og sagði mér að setjast hjá sér og fólkinu, vissi hvað ég heiti og allt.... ég heppin að hafa afsökun f. að sitja við barin þarsem ég hafði ekki guðmund um hver þetta var... og svo ultu heilu hjarðirnar af íslendingum þarna inn og svona annar hver brosti voða breitt til mín - ég þurfti að forða mér áður en illt færi verst.
Búin að skila fyrsta verkefninu (eftir nokkrar svefnlausar nætur) og er nú tilbúin að taka á lífsins hversdagsraunum... eins og að drekka fullt af bjór.

posted by sArs | 18:36