laugardagur, ágúst 21, 2004  

gLEðilegan ómenningardag: bensínverð komin uppí rugl-margar krónur líterinn, ríkisstjórn og Landsvirkjun halda áfram að eyðileggja landið og leyta að fleirri stöðum en Kárahnjúkum til að rústa, ísland er ennþá í NATO(og þessvegna vill Bobby Fisher ekki flytja uppá frón), þrír einstaklingar eiga nær allar matvöruverslanir landsins og vínbúðin í Austurstræti selur ekki kaldan bjór....
svona mætti lengi telja upp ómenningarlegu tilfelli nútímans, en við skulum einbeita okkur að einhverju jákvæðara - í dag er nóg að gera útum alla borg og þarmeð Kringlan tæmd af fólki sem þar vanalega hangir [kemur sér pistill um það seinna]. Og ó, hve það er líkt Eyjamönnum að herma eftir Reykjavík og halda menningardag sama dag og við! Dettur þeim ekkert betra í hug?

ÞEssi bÖlvaða blíða gerir það að verkum að mar komi engu í verk, heldur er alltaf úti að leika sér og slæpast í fríinu. Kannski mar reyni að fá lánaðan Huský hund hjá Haffa og láta þessa sléðahunda draga sig á Langbrettinu. Hef sett upp nýtt myndagallerí og eru komnar upp myndir ú Landmannalaugum, Rafting ferðinni og fleirru. Annars lýsi ég eftir uppstoppuðum Lunda til að kaupa fyrir lítinn pening - þarf á slíkum að halda fyrir sérstakt framtak...sem á eftir að afla mér 50 rokkstig! endilega hafið samband ef þið vitið um einn slíkan.

Búin að líta á eina listasýningu núþegar í dag og bíður mín fjöldinn allur af menningarlegu afþreyingunum.... plús tveggja klukkustunda bið eftir kaffibolla á öllum búllum bæjarins.

posted by sArs | 14:44


mánudagur, ágúst 16, 2004  

Manndrápstilraun 1: sArs skellir Ecoliner í rallýgír á flegiferð og nokkrir túristar fá framlengda hasarferð sína eftir Flúðasiglingu í Þjórsánni. Allir lifa bílferðina af... m.a.s. bíllinn.

nú er það bara að sjá hvOrt mér takist að gera manndrápstilraun nr. 2 næstu 3 daga - en frá mánudegi til miðvikudags mun ég mestmegnis vera stödd í gúmmíbát í hinum ýmsu ám um suðurlandið. Hef ekki gædað í 3 ár og það á að gera úr mér MANN og láta mig leiða einhverja fleirri óheppna túrhesta fyrir dauðans dyr - þ.e.a.s. í bát með mér niður óvenju vatnsmiklar ár. Þjórsá, Markafljót, Gljúfur í Fljótshlíð og Hólmsá - here I come in peace .... and leave in pieces!

Myndagalleríin gömlu eru bara horfin af alnetinu burt. En sArs setti upp nýtt alúm hÉr! nokkrar myndir úr Landmannalaugum og eitthvað auka borgarasvipbrigðisfínt.

yfir og úT... farin að skalla hrút.

posted by sArs | 01:18