laugardagur, janúar 18, 2003  

Tekið úr Eighties´ orðabókinni:

Dude
(1)Noun. Someone who is cool. The opposite of a dork.
(2)Excl. A greeting. Used with a close friend that is considered cool. ie. "Dude!"
Origins of this context word can be traced to California. It was originally used in reference to a horse's penis.

Afar lærdómsríkur og ýktmegaböst hress talmáti.

Var að koma úr heimsókn hjá vini mínum sem var með mér í bekk í fyrra. Tónlistarvinur síðasta árs. Skiptumst á nokkrum diskum - er komin með ágætis ferkst áhlustunarefni.... allt frá góðum gömlum kraftwerk smáskífum og að þýsku elektrópoppi. ætti að vera spennó.
Fór með bekknum á einhverja sudda krá í gær og bjargaði bekkjarsystur minni frá einhverjum gömlum, feitum, ofurölfingja! Hann var alltaf að klípa í rassinn á henni og þetta fór svo í taugarnar á mér að það endaði með því að ég stökk upp og reif kjaft við hann á minni bjagaðri dönsku: "For fanden man, ka´ du ikke se at hun ik´ ka´ lide dig, dit fede svin! Sørg for at du forsvinder herfra!! Skrid!" Mannbjálfinn var líka bara 1 og 60 á hæð og ekki lengi að hypja sig þegar reiða íslenska gellan sem var höfði hærra en hann byrjaði að bitcha! Fékk feitt respekt frá nágrannaborðunum...

posted by sArs | 18:49


föstudagur, janúar 17, 2003  

Þá er ég búin að setja myndirnar úr Jaðarsporti Laugardagsins inn á síðuna mína! Allir að fara HINGAÐ til að fá staðfestingu á því að við (Trausti, kári og sArs) séum hEtjuR!! Og láttu síðan eftir þig nokkur orð til að votta okkur þá virðingu sem við verðskuldum!

posted by sArs | 01:14


mánudagur, janúar 13, 2003  

Í fréttum er þetta helst: "Ofbeldi gagnvart lögregluþjónum í Árósum hefur næstum tvöfaldast á einu ári" og "Nýtt innanhús hjólabrettapark í Randers". Sara talar ekki eingöngu - heldur hlustar hún og les líka. Síðan var Brynja að deila því með mér í dag að það væru hlutfallslega jafn mikið af kaffihúsum í Árósum og í PARÍS!
Nóg af staðreyndum í bili........ Maður þarf víst að "integrerast" til að vera tekinn í sátt sem nýbúi - best að gera eins og aðrir meðal-árósabúar! = sArs segir þá bara "fuq da polís" og hendist fyrir götuhorn á kaffihús......

posted by sArs | 22:52